Pujol Originel eru ekki einungis lífrænt ræktuð vín heldur er sjálf víngerðin eins náttúruleg og kostur er á og til að mynda engu súlfati bætt saman við vínin. Vín verða þó aldrei súlfatlaus þar sem þau eru að finna náttúrulega í þrúgunum.
Vínið kemur frá vínhúsinu Domaine de la Rourede í Rousillon í Suður-Frakklandi, en það hefur verið í eigu Pujol-fjölskyldunnar frá því á átjándu öld.
Árgangurinn 2010 af þessu víni er mjög frábrugðin Originel 2009. Ekki í þeim skilningi að vínið sé betra eða verra, þetta eru sambærileg vín að gæðum. Í 2009 var helmingur blöndunnar úr Syrah-þrúgunni. Hér er hins vegar skipt yfir í Grenache og karakter vínsins,
2010 er dekkra, þarna er svartur berjaávöxtur, plómur, pipar og leður. Vínið er ögn sætara og þykkara, kröftugt með góðu en mjúku tannísku biti.
2.599 krónur. Góð kaup.