Louis Jadot Bourgogne Blanc 2010

Louis Jadot er með þekktustu négotiant-húsum Búrgund í miðhluta Frakklands en ræður jafnframt yfir 154 hektörum af ekrum um allt héraðið. Þar sem að ekrur eru yfirleitt litlar og eignarhald dreift byggja flest vinhúsin á því að kaupa þrúgur af bændum og geta því framleitt vín víðs vegar af svæðinu.

Þetta hvítvín frá Jadot er flokkað sem Bourgogne Blanc og er líkt og öll hvítvín svæðisins framleitt úr þrúgunni Chardonnay. Þrúgurnar koma frá nokkrum mismunandi svæðum. Þótt hvítu Búrgundarvínin séu óneitanlega einhver þau mögnuðust í heimi þegar vel lætur eru einföld Búrgundarvín oft þunn og lítil miðað við verð. Alls ekki þó í þessu tilviki. Þetta er þykkt og ávaxtríkt vín, sítrónubörkur og suðrænir ávextir, greip og ferskjur, sætir eikartónar og vanilla. Feitt og langt í munni, elegant uppbygging. Óneitanlega örlítið nýjaheimslegt af Búrgundarvíni að vera.

2.890 krónur.

 

Deila.