Thermenregion er eitt elsta víngerðarsvæði Austurríkis. Það teygir sig frá útjaðri Vínarborgar og suður á bóginn og þarna hafa verið ræktuð vín frá því á tímum Rómarveldis. Þetta er líka eitt heitasta víngerðarsvæði Austurríkis í margvíslegum skilningi. Vínhús Alphart-fjölskyldunnar er með þeim bestu á svæðinu og var raunar valið vínhús ársins í fyrra af austurríska víntímaritinu Falstaff.
Alphart-fjölskyldan er ekki síst þekkt fyrir að nota hinar gömlu hefðbundnu hvítvínsþrúgur svæðisins, Rotgipfler og Neuburger. Vínið hér hefur fallega gullin blæ og í angan þess blandast saman ávöxtur, blóm og hnetur. Mild perunangan og sítróna, möndlur og hvít blóm. Það hefur safaríkan og þykkan ávöxt í munni, þægileg ávaxtasæta og mild sýra, míneralískt. Unaðslegt vín.
2.599. Ótrúlega gott miðað við verð sem endurspeglast í einkunn vínsins.