Eco Balance er lífrænt ræktað rauðvín úr þrúgunni Pinot Noir sem ræktað er í héraðinu Bio Bio í Chile. Þetta er með syðstu víngerðarsvæðum Chile um 500 kílómetra suður af höfuðborginni Santiago. Aðstæður eru því áþekkari því sem gerist í nyrðri svæðum á norðurhvelinu, þ.e.a.s. það er meiri munur á milli árstíða og innan sólahringsins, sem hentar þrúgu á borð við Pinot Noir ágætlega.
Skógarávextir eru áberandi í nefi, rauð ber, jarðarber, nokkuð þroskuð, þarna eru líka krydd kanil, negull. Vínið nokkuð sýruríkt í munni, en þó mjúkt.
2.199 krónur. Ágæt kaup.