Delas Saint-Esprit Cotes-du-Rhone Rouge 2012

Maison Delas Fréres eða vínhús Delas-bræðranna er einn af klassísku vínframleiðendunum í Rhone-dalnum í Frakklandi. Það var um skeið í eigu Deutz-fjölskyldunnar sem framleiðir Champange Deutz en bæði vínhúsin, Deutz og Delas hafa verið í eigu hins virta kampavínshúss Louis Roederer síðastliðna tvo áratugi.

Saint-Esprit rauðvínið er frá Cotes-du-Rhone, blandan er sérstök að því leytinu til að þetta er nær hreint Syrah-vín (90%) með smá Grenache blöndu. Enda leynir Syrah sér ekki í þessu víni. Dökkt á lit, ungt og sólríkt. Í nefinu svört ber, krækiber og krydd, piprað. Ferskt yifrbragð í munni, staðföst tannín, vel uppbyggt og ávaxtaríkt.

2.595 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.