Purato Cataratto-Pinot Grigio 2013

Lífræn vín eru ekki lengur jaðarfyrirbæri og æ fleiri framleiðendur um allan heim leggja nú áherslu á að hafa vínræktina eins náttúrulega og kostur er á. Purato á Sikiley gengur skrefinu lengra og eru allar umbúðir, jafnvel flöskumiðarnir framleiddir úr endurunnu hráefni. Og vínið sjálft er hreint ekki slæmt.

Fallega ljósgullið á lit, vínið er sýrumikið og ferskt, í nefi mikil sítróna og greipávöxtur, sítrónubörkur, í munni, létt, lifandi og ferskt með þægilegri sýru.

1.999 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.