The Chocolate Block 2012

The Chocolate Block er suður-afrískt rauðvín frá vínhúsinu Boekenhoutskloof Blandan breytist ár frá ári en í þessum árgangi er Syrah algjörlega ríkjandi með 70%, Cabernet Sauvignon 13%, Grenache 10%, Cinsault 6% og hvíta þrúgan Viognier með 1%. Fyrir utan Cabernet er þetta því ansi suður-frönsk blanda. Þrúgurnar koma frá mismunandi ekrum á Höfðasvæðinu, allar af gömlum vínvið.

Þrátt fyrir nafnið er kaffi meira ríkjandi í fyrstu í nefi, jörð og reykur. Ávöxturinn er dökkur, djúpur, dökk ber, sólber, plómur, töluvert kryddað. Silkimjúk tannín í munni, þykkur ávöxtur, kakó í lokinn. Vín fyrir nautasteik.

4.999 krónur.

Deila.