Cono Sur er vínhús í Chile sem hefur getið sér orð fyrir að vera umhverfisvænt en ekki síður fyrir að framleiða mjög athyglisverð vín, bæði hvít og rauð. Hér er það vín úr grunnseríunni Bicycleta úr þrúgunni Pinot Noir.
Mjög ljóst á lit, rifsrautt, mild berjaangan, jarðarber, rifsber, örlítil jörð og krydd. Létt í munni, mjúkt og milt.
1.927 krónur. Góð kaup.