Suður-afrísku rauðvínin sækja í stílnum oft bæði í nýja heiminn og gamla heiminn. Það er gífurlega löng hefð fyrir víngerð á Höfðasvæðinu og þar má finna margar perlur. Nederburg er eitt af elstu víngerðarhúsunum og framleiðir nú fjölmörg vín í ólíkum verð- og gæðaflokkum. Þetta Cabernet-vín úr Manour House-línunni er virkilega forvitnilegt. Stíllin er einstaklega Bordeaux-legur, og vínið minnir á mjög gott Bordeaux-vín sem farið er að sýna réttan þroska, en fyrir brot af verði slíkra vína.
Fallegur dökkur litur, út í fjólublátt, flókin, margslungin angan, sætur, þroskaður ávöxtur, sólber og plómur, reykur, krydd, vindlakassi og kaffi. Þykkt og langt í munni, þroskuð, mjúk tannín, jörð. Einstaklega djúpt og margslungið vín fyrir peninginn, það hefur meira að segja lækkað í verð milli árganga, sem gefur víninu hálfa aukastjörnu.
2.599 krónur.