Ventoux er eitt af vínhéruðunum í suðurhluta Rhone-dalsins í Frakklandi. Þarna erum við komin í Miðjarðarhafsloftslag og vínin taka mið af því. La Vieille Ferme sem mætti þýða sem „gamla býlið“ er vín sem Perrin-fjölskyldan hefur framleitt á þessum slóðum um áratugaskeið og má segja að sé orðið eitt af klassísku ódýru vínum þessa svæðis. Þetta er einfalt vín en afskaplega aðlaðandi, hefur þennan suður-franska sjarma sem einkennir góð vín frá þessum slóðum, örlítið kryddað og fullt af sól, gott með mat.
Dökkrautt á lit, sólber, þroskuð kirsuber, lyng og svolítið piprað. Bjart og létt með mjúkum, krydduðum ávexti í munni. Má drekka örlítið kælt, rétt undir 18 gráðum. Sumarlegt.
2.026 krónur. Mjög góð kaup.