Alentejo er syðsta svæðið af helstu víngerðarsvæðum Portúgal, staðsett á milli höfuðborgarinnar Lissabon og Algarve. Alls þekur það um þriðjung af víngerðarsvæði landsins. Rík áhersla er yfirleitt lögð á hinar staðbundnu þrúgur. Þrúgurnar í þessu víni eru fjórar Aragonez (Tempranillo), Tinta Miuda, Tinda Caiada ogAlfrocheiro.
Dökkur og djúpur litur. Plómur í nefi, þurrkaður fennel, púðursykur, möndlukaramellur, blóðugt kjöt, mjúkt, mjög mjúk tannín, mjög sætur og kryddaður ávöxtur. Mikil sýra í lokin. Karaktermikið vín.
3.598 krónur. Mjög góð kaup.