Il Nostro Rosso Puglia 2013

Rosso Puglia frá Il Nostro er rauðvín frá Púglía, blanda úr lífrænt ræktuðum Negroamaro og Primitivo-þrúgum. Einfalt og þægilegt vín, rauð ber ríkjandi, kirsuber, trönuber, smá tutti-frutti-fílingur í nefinu, nammihlaup. Létt og mjúkt, ávaxtamikið, tilvalið pasta- og pizzuvín.

1.999 krónur. Góð kaup.

Deila.