Emiliana Adobe Carmenere Reserva 2013

Adobe eru vín frá Emiliana-vínhúsinu í Chile sem leggur áherslu á lífræna ræktun á öllum sínum vínum. Það má að miklu þakka víngerðarmanninum Alvaro Espinoza á sínum tíma en hann hefur verið helsti frumkvöðull suður-amerískrar víngerðar í að innleiða lífrænar og lífefldar aðferðir við vínrækt.

Við höfum verið að fjalla um nýja árganga í Reserva-línunni undanfarna daga og nú er komið að síðasta víninu í bili, sem er úr þrúgunni Carmenere. Hún er náskyld Merlot og það eru ekki mörg ár frá því að menn áttuðu sig á að meirihlutu „Merlot“-vínviðarins í Chile var í raun Carmenere. Nú dafnar hún á eigin forsendum, oft er hún svolítið grænari en Merlot og það sýnir sig hér, rauð ber, kirsuber og rifs, smá bláberjasulta, kryddjurtir, fennel og græn paprika. Ungt, rífur örlítið í, ágætis matarvín.

1.999 krónur. Góð kaup.

Deila.