Defesa Branco 2013

Defesa er til bæði hvít og rautt, hér er það hvítvínið úr smiðju vínhússins Esporao í Alentejo. Þetta er blanda úr þrúgunum Antao Vaz, Arinto og Roupeiro, allt þrúgur sem bundnar eru við Portúgal. Strágult, i nefi sítrusbörkur, fíkjur, mandarínur og mangó. Þurrt og svolítið feitt, sólbakað og suðrænt en meira þannig að vínið fer út í þurrkaða ávexti frekar en trópíska ávaxtabombu. Ágætis sýra sem heldur við ferskleikanum.

2.899 krónur. Frábær kaup.

Deila.