Vínhús Fischer-fjölskyldunnar er með þeim þekktari í Thermenregion suður af Vínarborg og framleiðir jaftn hin ágætustu hvítvín sem rauðvín. Austurrísk hvítvín eiga sér vaxandi hóp aðdáenda sem hafa uppgötvað ferskleika þeirra og þokka og er þar ekki síst hinni einstöku þrúgu Gruner Veltliner um að þakka.
Létt peruangan í nefi, perubrjóstykur og smá lyché, þægilega ferskt, örlítið piprað í lokin. Tilvalið sumarvín með grilluðum fiski eða sem fordrykkur.
1.999 krónur. Mjög góð kaup.