Camins del Priorat 2014

camins del prioratAlvaro Palacio er einn þekktasti víngerðarmaður Spánar og sá sem hafði mest áhrif á það að hið „gleymda“ hérað Priorat er nú eitt heitasta víngerðarsvæði heimsins.Þekktastur er hann auðvitað fyrir vínið L’Ermita en það kostar því miður eitt af þessum vínum sem kostar meira heldur en við flest viljum láta eftir okkur. eða um hundrað þúsund kall á flöskuna. Hann framleiðir hins vegar einnig töluvert (eða kannski ætti maður að segja verulega) ódýrari vín eins og Camins sem er all nokkuð aðgengilegra í verði.

Þetta er mikið of djúpt vín. Þroskaðar plómur, svört ber, mjög míneralískt, sítrusbörkur, áfengt, virkilega kraftmikið og ágengt í munni, kröftug tannín, sýrumikið og ávöxtur sem heldur vel í við áfengið.

90%

3.390 krónur. Frábær kaup.

  • 9
Deila.