Vicar’s Choice Pinot Noir 2013

vicar's choice pinot noirMarlborough-héraðið á Nýja-Sjálandi hefur löngum sýnt að það hentar frábærlega fyrir þær frönsku þrúgur sem að njóta sín best í tempruðu loftslagi. Sauvignon Blanc er þekktasta dæmið en hin rauða Pinot Noir, sem hefur nú þótt ansi dyntótt, nýtur sín ekki síður á þessum slóðum.

Þetta er bjart og þægilegt vín.Kirsuber, hindber í nefi ásamt greni, lavender, í munni  létt og þægilegt með mildri og góðri sýru.

80%

2.799 krónur. Góð kaup, vel gerður og þægilegur pinot sem hentar með jafnt ljósari kjöti sem bragðmiklum fiskréttum og mildum ostum. Reynið með laxi, ferskum, reyktum eða gröfnum.

  • 8
Deila.