Jólin eru sá ´timi sem að mörgum finnst ómissandi að eiga góða flösku af portvíni opna. Enda eru portvínin ýmsum kostum gædd sem henta vel á þessum árstíma. Þau ylja vel, það má geyma flöskuna lengi eftir opnun, þau eru frábær með mörgum eftirréttum, og ostum og smá skvetta getur gert kraftaverk fyrir sósur. Styrkt vín á borð við portvín eru líka nánast einu vínin sem passa vel við og ráða við rétti með miklu súkkulaði.
En hvað eru portvín? Í stuttu máli þá eru þetta vín frá vínhéraðinu Douro í Portúgal rétt ofan við borgina Oporto. Fyrsta skrefið við portvínsgerðina er að gera rauðvín og raunar eru rauðvínin frá Douro að verða stöðugt vinsælli. En það er ekki nóg að gera rauðvin – vínið verður ekki portvín fyrr en að það hefur verið styrkt með spíra í 20% og geymt í einhver ár, á flösku og/eða tunnu.
Einföldustu portvínin eru kölluð Ruby og oft hafa þau ekki verið geymd lengur en ár á tunnu. Þau eru yfirleitt ódýr og ávöxturinn er enn ríkjandi í bragði þeirra auk þess sem áfengið hefur ekki runnið mikið saman við vínið. Sé vínið geymt í nokkur ár í viðbót á tunnu er það kallað Fine Old Ruby eða jafnvel Vintage Character Port.
Eftir því sem vínið er geymt lengur á tunnu breytir það um lit, rauði liturinn tekur á sig brúna tóna og ávöxturinn víkur fyrir hnetum og möndlum. Þessi púrtvín eru kölluð Tawny með vísun í litarhátt þeirra. Skilyrði fyrir því að portvín megi skilgreina sem Tawny er að það hafi einungis verið látið þroskast á eikartunnum.
Portvín, sem eru tekin af tunnu eftir fjögur til sex ár og sett á flösku, eru kölluð Late Bottled Vintage Port eða LBV. Þau eru mun ódýrari og jafnframt minni vín og þurfa ekki lengri geymslu áður en þeirra er neytt. Yfirleitt eru mjög góð kaup í LBV-vínum frá virtu portvínshúsi.
Tawny-púrtvín frá einum tilteknum árgangi eru kölluð Colheitas og eru þegar vel lætur með ljúffengustu púrtvínum sem hægt er að finna
Bestu árin eru afbragðsvín tekin af tunnu eftir tvö ár og sett á flöskur. Þetta eru yfirleitt dýrustu portvínin og eru kölluð árgangsportvín eða vintage port, þar sem um vín frá tilteknum árgangi er að ræða en ekki blöndu.
Það er hægt að fá ágætis portvín í flestum flokkum hér. Porvínshús sem flestir þekkja er Sandeman’s sem auðþekkjanleg eru vegna skikkjuklædda mannsins á flöskumiðanum sem hefur verið tákn Sandeman um aldabil. Flest þekktu portvínshúsin bera ættanöfn stofnenda og oft eru þetta engisaxnesk nöfn eins og Sandeman’s, Graham’s, Taylor’s og Cockburn’s en líka portgúgölsk eins og Fonseca, svo nefnd séu önnur frábær portvínshús sem hér má yfirleitt nálgast.
Eldri Tawny- tíu ára – erhægt að fá til dæmis frá Graham’s og Taylor’s og sömuleiðis eru til fín Late Bottled Vintage vín frá Graham’s og Osborne.
Það hefur hins vegar farið lítið fyrir góðum árgangs-portvínum í vínbúðunum síðustu ár. Eitt alveg hreint frábært er þó til sem er 2000 árgangurinn frá Fonseca.