Campo Viejo er eitt af stærstu vínhúsum Rioja og var lengi í eigu Domecq-fjölskyldunnar. Vínin eru yfirleitt nokkuð klassísk og ágætlega gerð.
Gran Reserva-vínið er það sem legið hefur lengst á eik og flösku og hér er vínið komið á sjöunda ár. Það er ágætur dökkur berjaávöxtur í nefi, nokkuð eikað með sætri vanillu, örlitlum reyk, kaffi og kryddi. Það hefur ágætis ferskleika í munni, góða sýru og mjúk og fín tannín.
80%
2.999 krónur. Mjög góð kaup. Vín fyrir rautt kjöt.
-
8