„Avec“ um hátíðarnar- nýbylgja og klassík

Það hefur löngum þótt svolítið spari að bjóða upp á lítið staup af t.d. koníaki með kaffinu á eftir matinn. Hér áður fyrr var þetta staup kallað „avec“ á betri veitingahúsum en það má rekja til franska hugtaksins „du café avec le petit verre“ – þ.e. kaffi með litla staupinu.

„Kaffi avec“ getur verið af mörgu tagi. Hinn klassíski avec-drykkur er auðvitað koníak Öll koníök eru blönduð úr fjölmörgum koníökum, mismunandi gömlum og frá ólíkum svæð-um. Ráðast gæði þeirra og eiginleikar af því hvernig staðið er að blönduninni. Yngstu koníökin eru skilgreind sem þriggja stjörnu eða VS. Þau eru ung og gróf, blönduð úr ungu koníaki og yfirleitt ekki frá bestu svæðum héraðsins. Segja má að gæðakoníök byrji með VSOP-flokknum (Veru Special Old Pale) en dýrari (eldri) flokkar eru Napoléon, XO og Extra. Þessi koníök eru nær undantekningarlaust af betri svæðum Cognac, þ.e. Grand Champagne, Petit Champagne og Borderies. Sé koníak blanda af vínum frá Grand Champagne og Petit Champagne er koníakið kallað Fine Champagne. Að minnsta kosti helmingur blöndunnar verður þó að koma frá Grand Champagne.

Eitt af því forvitnilegasta sem við höfum fengið til smökkunar upp á síðkastið er koníakið Ile de Ré frá Camus. Það er engin tilviljun að flaskan af Ile de Ré minnir frekar á skoskt eyjaviský en koníak. Ile de Ré eða Ré-eyja er um flest einstakt á koníaksmarkaðnum. Þetta er ekki Borderies-koníak líkt og flestar afurðir Camus og þaðan af síður Fine Champagne koníak heldur Fine Island. Ré er eyja vestur af hafnarborginni La Rochelle og þótt hún sé vestasti hluti hins skilgreinda ræktunarsvæðis koníaks er eyjan þekktari fyrir framleiðslu á sjávarsalti en koníaki.

Alls eru Ugni Blanc-þrúgurnar sem notaðar eru til koníaksframleiðslu ræktaðar á 300 hektörum á Ré og fyrir nokkrum árum tók Camus-fjölskyldan saman við samtök vínræktenda á eyjunni og lagði grunn að þessu „byltingarkennda“ koníaki. Aðstæður á Ré eru um margt frábrugðnar þeim á meginlandinu. Loftslagið er mildara og sjávarloftið hefur veruleg áhrif á þróun þrúgnanna. Joð-magn er til dæmis níu sinnum hærra en í þrúgum á meginlandinu (Islay einhver?).

Koníakið er framleitt í þremur útgáfum, Fine Island, Fine Island Double Matured og Fine Island XO. Double Matured útgáfan sem hér fáanleg byggir á svipaðri aðferð og svokölluð Double Wood viský þar sem koníakið er geymt á tveimur tegundum af tunnum áður en því er tappað á flöskur. Á Ré eru þó ekki notaðar gamlar púrtvínstunnur líkt og í Skotlandi heldur tunnur sem áður hafa verið notaðar undir koníak, annars vegar frá eyjunni og hins vegar frá Camus á meginlandinu.

Annað koníak öllu klassískara er Cordon Bleu frá koníakshúsinu Martell sem nú er aftur að ryðja sér til rúms hér á landi. Martell-fjölskyldan stofnaði þetta hús árið 1715. Hún kom upphaflega frá eyjunni Jersey og fljótlega varð Martell vinsælasta koníak Bretlands.

Cordon Bleu er blanda frá nokkrum svæðum Cognac sem að  Edouard Martell setti fyrst saman árið 1912 og kynnti í Hotel de Prais í Mónakó. „Uppskriftin“ hefur haldið sér síðan, uppistaðan er alltaf koníak frá svæðinu Borderies. Þetta koníak er ekki það dýrasta frá Martell en óumdeilanlega það þekktasta. Það er uppáhald margra þeirra sem að kjósa klassíkina. Það er kröftugt, bragðmikið og mjúkt, mikil vanilla, ávaxtaríkt og kryddað, jafnvel smá piparkökur í nefinu.

 

Deila.