Pata Negra-línan frá spænska vínfyrirtækinu Garcia Carrion sækir þrúgur til átta af helstu vínhéruðun Spánar. Hér er það þrúgan Chardonnay ræktuð í Pénedes, víngerðarhéraði rétt suður af Barcelona.
Fölgult, í nefi ferskjur, perur, þarna er nokkur eik sem birtist í smjöri og vanillu. Létt og ágætlega ferskt, þægilegt og milt hvítvín.
70%
2.199 krónur. Góð kaup. Fordrykkur eða með mildum sjávarréttum.
-
7