Pata Negra Gran Reserva er eitt af vínunum sem fyrirtækið Garcia-Carrion framleiðir úr þrúgum frá átta af þekktustu vínhéruðum Spánar. Þetta rauðvín kemur frá Valdepenas-svæðinu í miðju landinu, sem segja má að sé hjarta spænsku rauðvínsframleiðslunnar og er þar framleitt af (var áður selt undir nafni) Senorio Los Llanos.
Þetta er afskaplega ódýrt vín og eins og svo oft áður spyr maður sig hvernig Spánverjum tekst að gera þetta mikil og djúp vín sem kosta ekki meiri pening. Þetta er alvöru rauðvín, enn mjög sprækt og unglegt þrátt fyrir að nálgast áratuginn í aldri. Djúpur, dökkur ávöxtur, sæt og þroskuð kirsuber og plómur, kaffi og eik, feitt, ferskt með flottri sýru, mjúk tannín, nokkuð kryddað, fennel. Minnir á klassískan Rioja..
1.999 krónur. Alveg frábær kaup á þessu verði. Flott og mikið kjötvín fyrir verðið.
-
8