Éric Louis Pinot Noir 2014

IMG_0123Éric Louis er vínhús í Thauvenay-en-Sancerrois í austurhluta Loire-dalsins og er þekkt fyrir ekki síst Sancerre-vín sín þar sem lögð er áhersla á lífræna og lífeflda ræktun. Þótt svæðið sé þekktast fyrir hvítvínin sín úr Sauvignon Blanc-þrúgunni er þarna einnig ræktuð hin rauða Pinot Noir, þrúga nágrannahéraðsins Búrgund. Þrúgurnar í þetta vín Louis koma af svæði skammt frá Sancerre og vínið er flokkað sem „vin de France“.

Þetta er nokkuð dökkt Pinot Noir vín og í nefi má einni greina dökkrauð ber, kirsuber og þroskuð rifsber, skóagerber það er nokkuð kryddað, þykkt og mjög mjúkt í munni með þroskuðum berjum. Þetta er ekki dæmigert Pinot Noir í Búrgundarstíl, sýruminna, mýkra og ekki eins tannínríkt. Skemmtilegt vín.

Deila.