Allegrini er eitt af bestu vínhúsum Valpolicella-svæðisins og Allegrini-fjölskyldan framleiðir breiða línu vína í mörgum verðflokkum. Hér er eitt af ungu og ódýrari vínunum þeirra, Valpolicella 2015. Þetta er afskaplega huggulegt og sjarmerandi vín, bjartur, tær, rauður ávöxtur í nefi, kirsuber og aftur kirsuber og sætar, ristaðar möndlur. Ferskur og flottur ávöxtur í munni, fínt sýrubit. Fínasta matarvín.
80%
2.390 krónur. Frábær kaup.
-
8