Cote Mas-línan varð upphaflega til sem húsvín fyrir veitingastað sem vínhúsið Paul Mas rekur við vínbúgarðinn í Languedoc í Suður-Frakklandi. Það vantaði gott og dæmigert suður-franskt vín sem gæti verið „vín hússins“ og auðvitað getur vínhús ekki boðið upp á slæmt húsvín.
Þetta er sumarlegt og aðlaðandi hvítvín þar sem meginþrúgurnar eru Grenache Blanc og Vermentino en einnig smá Chardonnay og Sauvignon Blanc. Sæt og ávaxtarík angan, þroskaðar ferskjur, melónur og hvít blóm. Góð þykkt og ferskleiki i´munni. Hið prýðilegasta vín.
70%
1.980 krónur. Hið prýðilegasta sumarvín.
-
7