Apothic White er hvítvín frá Kaliforníu, nokkuð ónvejuleg blanda úr þrúgunum Chardonnay, Riesling og Pinot Grigio. Það er ljósgult á lit, litur nokkuð þykkur, í nefi mjög sætur ávöxtur, sítrus, jafnvel út í appelsínur en þarna eru líka apríkósur og þroskuð epli, sætir suðrænir ávextir og vottur af austurlensku kryddi. Í munni sætara en maður á von á, þykkt og nokkuð þétt. Vel gert, flottur ávöxtur en ekki fyrir þá sem vilja þurr og fersk fín.
70%
1.999 krónur. Berið fram vel kalt vegna sætunnar. Eitt og sér eða með krydduðum, asískum mat.
-
7