Corte Giara er ein af vínlínunum frá vínhúsinu Allegrini í Veneto á Ítalíu og í vínin eru notaðar þrúgur sem keyptar eru af bændum á svæðinu en ekki af ekrum fjölskyldunnar.
Þetta Pinot Grigio hvítvín hefur fölgulan lit, angan þess er fersk, skörp, græn epli, blóm og örlítill sítrus, í munni hefur vínið skarpan og sýruríkan ferskleika. Sumarlegt og fínt.
70%
1.790 krónur. Mjög góð kaup.
-
7