Búrgund er heimasveit Chardonnay-þrúgurnar og þaðan koma mörg af þekktustu hvítvínum veraldar. Héraðið skiptist í nokkur svæði og þau sem íslenskum vínneytendum eru hvað kunnugust eru líklega nyrsta svæðið og hið syðsta, Chablis og Pouilly-Fuissé.
Chateau de Santenay er eins og nafnið gefur til kynna vínhús í þorpinu Santenay á Cote d’Or svæðinu um miðbik héraðsins, suðvestur af bænum Beaune. Vieilles Vignes gefur til kynna að hér sé um að ræða vín af gömlum vínvið og þótt verðmiðinn sé ekki ýkja hár miðað við verð margra vína sveitunganna er þetta hið prýðilegasta hvíta Búrgundarvín.
Vínið hefur fallegan gulan lit og angan þess er djúp og nokkuð margslungin, þykkur, sætur sítrusávöxtur, blóm, smjör og perur, Það hefur nokkuð þykka áferð, þægilegan beiskleika og sýru, góða lengd. Prýðisvín.
2.990 krónur. Vel gert Búrgundarvín á virkilega fínu verði. Hálf auka stjarna fyrir hlutfall verðs og gæða.
-
9