Montes Limited Selection Pinot Noir 2014

Búrgundarþrúgan Pinot Noir var lengi vel þekkt fyrir það að þrífast afskaplega utan heimahagana í Frakklandi. Á síðustu árum og áratugum hefur þeim stöðugt þó sífellt verið að fjölga þar sem víngerðarmenn hafa náð undragóðum tökum á þessum duttlungafulla Frakka. Sem betur fer fyrir vínunnendur því að fátt slær góðum Pinot við.

Í Chile hafa menn verið að fikra sig áfram víða með Pinot ekki síst í dölum og á hæðum þar sem að loftslagið er milt og kallt Kyrrahafið nær að tempra hitann. Aurelio Montes ræktar Pinot-þrúgurnar í þetta vín á svæðinu Aconcagua Costa en þar er Kyrrahafið í einungis um 12 kílómetra fjarlægð. Aconcagua Costa fékk stöðu sem DO-víngerðarsvæði fyrir einum fjórum árum en þarna er m.a. að finna dalina Casablanca og Leyda.

Í nefi er að finna klassíska Pinot-angan, rauða berjakörfu, jarðarber, trönuber, hindber og rifs í bland við blóm og örlitla vanillu. Mjúkt og elegant, mild tannín og góð lengd og fylling. Heillandi vín.

80%

2.398 krónur. Frábær kaup.

  • 8
Deila.