Vernissage Shiraz-Cabernet Sauvignon 2015 BIB

Þetta kassavín – eða ætti maður kannski að kalla það töskuvín – kassinn er mótaður eins og elegant handtaska, er suður-franskt, gert úr Syrah-þrúgum ræktuðum í Languedoc blönduðum saman við Cabernet Sauvignon. Vínið kemur frá sænska vínhúsinu Oenoforos sem lætur framleiða fyrir sig vín víða um Evrópu og hefur einnig hafið framleiðslu, eða kannski öllu heldur eftirvinnslu sjálft á vínum úr innfluttum vínsafa í framúrstefnulegu víngerðarhúsi í Suður-Svíþjóð er ber nafnið Nordic Sea Winery. Vínin frá Oenoforos hafa verið afskaplega vinsæl á Norðurlöndunum, ekki síst Svíþjóð og nokkur þeirra hafa ratað hingað upp á síðkastið.

Það eru þrjú vín fáanleg í „töskunum“, hvítt, rósa og rauðvín og þetta rauða er það sterkasta í þrennunni. Dökkrauður og djúpur litur og angan af rauðum berjum, kirsuberjum og skógarberjum, ávöxturinn kröftugur en mjúkur, kryddaður,bjartur og ungur, töluverð sæta.

70%

3.890 krónur eða sem samsvarar 1.945 krónur á 75 cl flösku.

  • 7
Deila.