Golden Reserve-línan frá argentínska vínhúsinu Trivento hefur fyrir löngu sýnt og sannað hvers hún er megnug. Þetta eru ávallt afskaplega vel gerð vín sem gefa gífurlega mikið fyrir peninginn.
Chardonnay-vínið í línunni er nú 2015 árgangurinn, eikað yfirbragð, vanillusykur, smá eldspýta og þykkur og sætur suðrænn ávöxtur, ananas, ferskjur, melóna. Þétt og ferskt, góð sýra gefur því líf og lengd í bland við þykkan ávöxtinn.
80%
2.999 krónur. Frábær kaup.
-
8