Altos Las Hormigas er eitt af þeim áhugaverðu vínhúsum sem hafa verið stofnuð á undanförnum árum á svæðinu Uco í Mendoza í Argentínu. Uco er með syðri ræktunarsvæðunum Mendoza og ekrurnar eru hærra yfir sjávarmáli en á flestum öðrum svæðum. Altos Las Hormigas er líkt og mörg önnur vínhús í Uco stofnað af evrópskum víngerðarmönnum sem heilluðust af möguleikum þess og Malbec-þrúgunnar. Í þessu tilviki voru það Ítalir frá Toskana sem að stofnuðu vínhúsið með víngerðarmanninn Alberto Antonini í broddi fylkingar.
Þetta Reserve-vín frá Altos Las Hormigas er rauðfjólublátt á lit og það leynir sér ekki að þett er Malbec sem er ræktaður við „svalari“ aðstæður en flest önnur stór Malbec-´vin sem hér eru fáanleg. Dökkrauður ávöxtur, mjög míneralískt og kryddað, áberandi negull, smá lakkrís, eikin mild, tannín mjúk, elegant og flott vín.
3.995 krónur. Frábært vín. Með öllu grilluðu kjöti.
-
9