Chateau de Santenay er eins og nafnið gefur til kynna vínhús í þorpinu Santenay á Cote d’Or svæðinu um miðbik Búrgundar-héraðsins, suðvestur af bænum Beaune. Vieilles Vignes gefur til kynna að hér sé um að ræða vín af gömlum vínvið og rétt eins og hvíta systurvínið er þetta frábærlega vel gert Búrgundarvín sem gefur mikið fyrir peninginn.
Rauð ber í nefi, rifs, kirsuber, trönuber, sýrumikið, kryddað og ferskt. Vínið opnar sig vel, það borgar því að gefa því smá tíma og leyfa því að blómstra, ávöxturinn springur þá út, vínið hefur góða lengd.
90%
2.990 krónur. Frábært Búrgundarvín fyrir þann pening.
-
9