Michel Chapoutier er einn virtasti víngerðarmaður Rhone-dalsins í Frakklandi og þetta vín nefnir hann í höfuðið á afa sínum Maríusi. Í þessu víni leggur hann líka land undir fót, fer frá heimaslóðunum í Rhone til Languedoc við frönsku Miðjarðarhafsströndina. Sjálfur hefur Michel Chapoutier líkt þessu vín við það þegar að sumir af þriggja Michelin-stjörnu kokkum Frakklands hafa ákveðið að hvila sig aðeins á stjörnumatargerðinni og opna einfaldari staði þar sem að áherslan er eingöngu á góðan mat.
Þetta er þægilegur og svakalega ljúffengur Suður-Frakki, bjartur og heitur, rauður ávöxtur, skógarber og krydduð, safarík kirsuber, ferskur, þéttur og sætur ávöxtur heldur áfram í munni. Kallar á góðan suður-evrópskan mat, t.d. lamb og ferskar kryddjurtir.
1.999 krónur. Frábær kaup á því verði. Hálf auka stjarna fyrir hlutfall verðs og gæða.
-
8