Diznoko Tokaji Dry Furmint 2015

img_2760Tokaji-héraðið í Ungverjalandi eða Tokay eins og margir þekkja það betur sem er það vínhérað veraldar sem býr til stórkostlegustu sætvín sem framleidd eru ásamt t.d. Sauternes og Mósel. En það eru ekki öll vin sæt frá Tokaji. Þetta hvítvín er frá vínhúsinu Diznoko, sem einmitt er eitt af bestu sætvínshúsunum, og þrúgan er sú sama og í sæta Tokaji-víninu, hin ungverska Furmint og af sömu ekrum en týnd rétt áður en eðalmyglan botrytis fer að myndast og gera sætvínsframleiðsluna kleifa. Hérna er hún því í skrjáfþurrum búningi. Og það fer henni bara alls ekki illa.

Í neifnu eru mild græn epli en líka grænar jurtir, brenninetlur, anís, mildur möndlukeimur. Í munni springur vínið út, þurrkaðar ferskjur, apríkósur, míneralískt, mjög þurrt með góðum ferskleika.

80%

2.398 krónur. Frábær kaup, flott vín með flottan karakter.

  • 8
Deila.