Brancott Estate er með elstu vínhúsunum í Marlborough á Nýja-Sjálandi, stofnað þegar árið 1934 sem er ansi hreint virðulegur aldur á þessum slóðum, enda ekki fyrr en fyrir um tuttugu til þrjátíu árum eða svo sem að umheimurinn uppgötvaði hversu mögnuð vín eru framleiddu þarna hinum megin á hnettinum.
Letter Series er ein af bestu vínlínum Brancott og þetta er ansi flottur Sauvignon Blanc. Fölt á lit, í nefi kröftugur, mjög bjartur og kröftugur sítrus, þarna eru niðursoðnar sítrónur og sítrónubörkur en líka ástaraldin. Þétt, langt og ferskt, með sætum og þægilegum ávexti.
80%
2.699 krónur. Frábær kaup. Flottur fordrykkur.
-
8