Coyam er magnað vín frá chilenska vínhúsinu Emiliana. Þrúgurnar koma frá Los Robles búgarðinum í Colchagua-dalnum og þetta er blanda úr Syrah, Carmenere, Merlot, Cabernet Sauvignon, Mourvédre og Malbec. Ræktunin er lífefld og lífræn.
Dökkt á lit, fjólubláir tónar sem eru að byrja að víkja fyrir byrjandi þroska. Nef vínsins tekur á móti manni heitt, sætt og kryddað, þroskuð dökk ber, kirsuber, kóngabrjóstsykur og sæt krydd. Það breiðir vel úr sér mjúkt og seyðandi, kryddað og spennandi.
100%
3.499 krónur. Frábær kaup, magnað vín fyrir peninginn.
-
10