Michel Lynch 2014

img_2666Michel Lynch eru vín sem framleidd eru af Cazes-fjölskyldunni sem er ein af rótgrónu vínfjölskyldunum í Bordeaux. Þekktasta vínhús þeirra er Chateau Lynch Bages á Bages-hæðinni í Pauillac sem einnig er kennt við Thomas-MIchel Lynch, sem stofnaði vínhúsið á nítjándu öld ásamt vínhúsum sem í dag eru þekkt undir nöfnunum Lynch-Moussas og Dauzac.

Þetta er byrjunarvínið í línunni, vel gert og  traust Bordeau-vín, blanda úr Cabernet og Merlot. Það er Merlot sem er ríkjandi í blöndunni, dökkrauður ávöxtur, rifs út í sólber, stífur strúktúr, tannískt og Bordeaux-legt.

70%

2.299 krónur. Mjög góð kaup.

  • 7
Deila.