Fyrsta vínið sem Peter Lehmann framleiddi var kallað “Futures” og var selt í eins konar framvirkum viðskiptum til vina og kunningja sem vildu styðja við bakið á honum og voru reiðubúinn að borga vínið þótt þau fengu það ekki afhent fyrr en tveimur árum síðan. Nú er Lehmann með öflugustu framleiðendum Ástralíu og vínið sem ber nafnið Futures skipar ávallt sérstakan sess í framleiðslu fyrirtækisins.
Dökkt og djúpt, þetta er afskaplega flottur ástralskur Shiraz, ávöxturinn þykkur og mjúkur, fullt af dökku súkkulaði, kaffitónar og þroskaðar plómur, örlítill vottur af ekvalyptus, þétt, mjúkt og langt. Vín til að smjatta á. Flott með rauðu kjöti, jafnvel villibráð.
90%
3.199 krónur. Frábær kaup.
-
9