Þótt margir tengi kannski Sauvignon Blanc við Nýja heiminn, Chile og Sauvignon Blanc, þá er þetta hennar eina sanna konungsdæmi, þorpin Sancerre og Pouilly-Fumé austast í Loire-dalnum í Frakklandi. Pascal Jolivet er einn af allra fremstu framleiðendum svæðisins, vínin hans eru alla jafna unaðsleg, fersk, lifandi og endurspegla þessa stórkostlegu þrúgu fullkomlega.
2015 var heitt og þurrt ár, frábært víðast hvar í Frakklandi. Bestu Sancerre-vínin bera þess merki, það er minna um græna tóna en venjulega. Þetta vín frá Jolivet er ljóst og tært á lit, suðrænt, ferskjur, melóna og greipávöxtur. ristaðar möndlur nokkuð áberandi, smá þægileg beiskja í munni og þroskaður flottur ávöxtur, góð sýra.
90%
3.498 krónur. Frábær kaup, reynið með humri.
-
9