Gerard Bertrand Cote des Roses Blanc 2015

Cote des Roses-vínin frá Gerard Bertrand eru auðþekkjanleg á flöskunni sem er hönnuð til að minna á rós. Þrúgurnar eru þrjár dæmigerðar hvítvínsþrúgur frá Miðjarðarhafssvæðinu í Frakklandi, Grenache Blanc, Viognier og Vermentino.

Fölgult, í nefi angan af sítrúsberki, ferskum  ananas og blómum, þurrt, örlítil þægileg beiskja í ávextinum, ferskt. Flott vín.

80%

2.599 krónur. Frábær kaup.

  • 8
Deila.