Cote des Roses-vínin frá Gerard Bertrand eru auðþekkjanleg á flöskunni sem er hönnuð til að minna á rós. Þrúgurnar eru þrjár dæmigerðar hvítvínsþrúgur frá Miðjarðarhafssvæðinu í Frakklandi, Grenache Blanc, Viognier og Vermentino.
Fölgult, í nefi angan af sítrúsberki, ferskum ananas og blómum, þurrt, örlítil þægileg beiskja í ávextinum, ferskt. Flott vín.
80%
2.599 krónur. Frábær kaup.
-
8