Chianti er með þekktari nöfnum í ítölskum ef ekki það þekktasta en það er ansi stórt svæðið sem fellur undir Chianti, raunar stór hluti af héraðinu Toskana. Hjartað í svæðinu er skilgreint sem Chianti Classico og grunnvínin falla undir heildarskilgreininguna Chianti. Þessu til viðbótar eru síðan nokkuð minni og afmörkuð undirsvæði og þetta kemur frá einu þeirra, Colli Senesi, sem mætti snara sem „hæðunum í kringum Siena“.
Þetta er létt og þægilegt Chianti-vín, blanda úr Sangiovese og Merlot, dökkrauður kirsuberjaávöxtur, smá plómur, te og blóm. Nokkuð sýrumikið, létt og mjúkt.
70%
2.495 krónur. Góð kaup.
-
7