Cono Sur Block 25 La Palma Syrah 2015

La Palma eða Block 25 er vínekra í San Antonio-dalnum í Chile þar sem að Cono Sur ræktar Syrah-þrúgurnar í þetta vín.

Vínið er afskaplega dökkt, nánast svart á lit, í nefi öflugur dökkur berjaávöxtur, bláberjasafi, nánast út í bláberjasultu, kryddað með vott af sandalvið, þétt og mjúkt. Þetta er vín sem er enn mjög, mjög ungt og það þarf góðan tíma til að opna sig.

90%

2.590 krónur. Frábær kaup. Með grilluðu, bragðmiklu kjöti.

  • 9
Deila.