Vínin frá Montecillo þarf vart að kynna. Þessi Rioja-vín úr smiðju Osborne-fjölskyldunnar hafa notið mikillar lýðhylli hér á landi frá því að þau komu fyrst á markaðinn. Það er ekki verra að vínin hafa að undanförnu verið að ganga í gegnum eins konar endurnýjun lífdaga undir hinni styrku stjórn Rocio Osborne eins og sést vel á þessu Crianza-víni. Það er hægt að lesa nánar um síðustu heimsókn okkar til Montecillo hér.
Fallega rautt á lit með aðlaðandi, björtum og rauðum berjaávexti í nefi, það má greina smá jörð og krydd og ávöxturinn hefur fínan þroska. Í munni ágætlega þykkt með þægilegri, ferskri sýru, hófstilltri eik og mildum tannínum, Vel balanserað og gert vín. Matarvín.
80%
1.999 krónur. Frábær kaup.
-
8