Það eru mörg dæmi um það á Ítalíu að víngerðarmenn sem hafa náð miklum árangri á heimaslóðum ákveði að láta til sín taka á öðrum svæðum. Það má taka sem dæmi Piedmont-goðsögnina Gaja sem hefur verið stórtækur í Toskana á seinni árum og Toskana-goðsögnina Antinori sem á nú einnig vínhús í Piemonte, Úmbríu og víðar. Allegrini-fjölskyldan er ein af þekktustu vínfjölskyldum Veneto og hún hóf árið 2003 að rækta vín á landareigninni Poggio al Tesoro í Bolgheri í Toskana.
Mediterra er eitt af vínunum frá Poggio al Tesoro og það er langt í frá að vera sígilt Toskana-vín. Meginþrúgan er Syrah og í blöndunni er líka að finna Cabernet Sauvignon og Merlot. Dökkrautt á lit, út í fjólublátt. Þétt og þurr berjaangan, kirsuber og sólber, fersk og mild viðarangan, örlítið mjólkursúkkulaði og tóbakslauf, mjúkt og þægilegt.
2.990 krónur. Frábær kaup.
-
9
