Adega er vínsamlag bænda í þorpinu Vila Real í Douro-dalnum í Portúgal. Vínin af þessu svæði eru eitthvað það mest spennandi í evrópskri víngerð í dag og þeir hjá Adega eru framarlega í flokki, þetta er talið vera eitt besta vínsamlag þeirra Portúgala.
Dökkur, þéttur, djúpur litur. heitur ávöxtur, þroskaður og þurrkaður, út í smá sveskjur og rúsínu, bæði í nefi og munni, mjúk tannín. Karamella. Svolítið púrtvínskarakter í ilm og bragði.
80%
3.460 krónur. Frábær kaup, klassískt hefðbundið Douro.
-
8