Magister Bibendi Graciano Reserva 2010

Þrúgan sem flestir tengja við Rioja er Tempranillo, sem er langalgengasta þrúga héraðsins. Þær eru þó fleiri þrúgurnar sem notaðar eru í þessu héraði og klassísku Rioja-blöndunni er einnig að finna Mazuelo og Graciano. Þær rekst maður þó sjaldan á einar og sér. Í þessu víni frá Bodegas Navarrosotillo fær Graciano hins vegar að njóta sín ein og sér.

Navarrosotillo er tiltölulega ungt vínhús, stofnað árið 1995 og hefur frá upphafi ræktað allar sínar þrúgur með lífrænum aðferðum.

Litur vínsins er djúprauður, dekkri en oft á Rioja-vínum þótt greina megi byrjandi þroska. Dökk, þroskuð ber í nefi, kirsuber og trönuber, blóm, fjólur og mild kryddangan, negull, svolítið sprittað. Þétt, með finni ferskri sýru og góðri lengd.

80%

3.390 krónur. Mjög góð kaup. Með lambi.

  • 8
Deila.