Campo Viejo Gran Reserva 2011

Campo Viejo er eitt af stóru klassísku Rioja-húsunum og Gran Reserva-vínið er eitt af þeim klassísku. Líkt og reglur segja til um er Gran Reserva geymt á eikartunnum í tvö ár og síðan í að minnsta kosti þrjú ár á flösku áður en þau koma á markað. Þau eru því yfirleitt fullkomin til neyslu þegar í búðir kemur þótt þau geti vel lifað í mörg ár í viðbót.

Liturinn er enn dökkur þótt greina megi byrjandi þroska og angan vínsins er flókin og margslungin, eikin hefur runnið vel saman við dökkan ávöxtinn og kakó, kókos og sandalviður eru áberandi, vínið þykkt og mikið, þurrt og mjúkt, nokkuð míneralískt.

90%

2.699 krónur. Frábær kaup, frábært verð fyrir vandað Gran Reserva. Með nautasteikum og hví ekki nautalund Wellington.

  • 9
Deila.