Villibráðarkvöld í Lava

Nú fer tími villibráðarinnar í hönd líkt og sjá má á tilkynningum sem berast frá veitingahúsunum. Á laugardaginn verður til dæmis villbráðarveisla á veitingastaðnum Lava í Bláa lóninu. Einungis er um eitt kvöld að ræða en auk vínsmökkunar og villibráðharhlaðborðs munu Egill Ólafsson, Björn Thoroddsen og Gunnar Hrafnsson sjá um tónlistina. Verð er 6.900 og fær hver gestur að auki frímiða í Bláa lónið sem gildir fram í mars á næsta ári. Á matseðlinum er m.a. að finna „snarvillt lamb með ávaxtafyllingu“, „hægeldaða hrefnu með rósapiparsósu“ og „andabringur með appelsíni og ólífum“.


Deila.